Skilmálar

Jón og Gunna áskilur sér rétt til að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti á næsta pósthús. Sendingarkostnaður er frír hvert á land sem er.

Greiðsla

Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti, debetkorti eða millifærslu. Kortafærslur fara allar í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor og því fær Jón og Gunna aldrei kortaupplýsingar kaupanda.

 

Afhending á vörum

Allar pantanir eru afgreiddar og sendar frá okkur næsta virka dag eftir að pöntun og greiðsla hefur borist. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband. Allar pantanir eru sendar sem skráðir pakkar hjá Íslandspósti. Um allar pantanir gilda því afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé greiðslukvittun sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt og hvað hún kostaði. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi. Við skil á vöru er miðað við verðið sem var greitt fyrir hana. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni út fyrir aðra vöru verður inneignin millifærð inn á reikning kaupanda. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Ef að umrædd vara er ekki til bjóðum við upp á að skipta fyrir aðra vöru eða endurgreiðum vöruna til fulls. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.